Wake up call!
10.09.2008 17:20:05 / astros

17 ára ástkona í Reykjanesbæ


Jæja þá er komið að því, ég er ólétt!! og faðirinn er Damien Rice.

Ef þú trúðir þessu..þá varst þú rétt í þessu að læra að þú ert auðtrúa manneskja.
Ég skil það hins vegar vel ef þú trúðir því sem stóð í DV( ef þú hefur lesið það), allavega
trúði ég því næstum því.

Eeen semsagt það fyrsta sem ég gerði þegar ég heyrði um þessa grein í Dv var að hlæja.
Og svo tók ég minn tíma í það að hugsa. Það gæti einfaldlega stafað af ágætri kunnáttu
í stærðfræði en ég fór að leggja tvo og tvo saman og fékk út útkomu sem gat auðveldlega passað:
Grein um mig(einhver smástelpa í krummaskuðinu Keflavík) + Damien Rice (frægur og
lífsreyndur tónlistarmaður) = hneykslandi slúður saga sem gæti aukið söluna á Dv blaðinu.

Jæja ég gat svo sem sagt mér þetta sjálf þegar ég ákvað að svara ekki símanum deginum áður:
ef að sannar heimildir fást ekki, þá er búið til þær heimildir sem vantar og vonast til að græða.
Gott dæmi um þetta gerist í daglegu lífi hjá t.d. skólakrökkum:
-Eiga að skrifa 500 orða ritgerð
-Finna ekki nema 350 orð á netinu til að copya og pastea yfir í word
-Búa til mjög líklegar heimildir sem gætu gengið.
-Skrifa wikipedia sem heimild
-Kennarinn kemst ekki að þessu því hann getur ekki athugað allar heimildir sem
krakkarnir nota.

Jájá engin geimvísindi þar á ferðinni.

En þetta er víst slúður sagan sem maður heyrir í dag( ég sem var að vona að slúðrið myndi
minnka í Keflavík, eftir dauða bgud síðunnar..ekki illa meint Björn minn, ég bíð ennþá spennt
eftir opinberri opnun verðandi síðu þinnar).

Kannski spurja margir sig, .. eða tjaa get ekki sagt margir en mínir hinstu bloggaðdáendur sem
skoða síðuna ennþá eftir árs pásu (ég held í vonina að það sé einhver), ,,Hver í
fjandanum er þá sannleikurinn" jújú ég skal gefa ykkur hann í flótu bragði (þó að hann er ekki jafn spennandi og hin sagan), á silfur fati..eða frekar á
litlausri bloggsíðu.

Ég og Damien Rice þekkjumst. Hann koma á ljósanótt og gisti heima, ekki í sama herbergi og ég!
(það virðist vera aðal misskilningurinn). Guð forði því að hann sé ástfanginn af stelpu sem
gæti þess vegna ennþá verið með bleyju. Hann er ágætur fjölskylduvinur og einnig erum við ágætis vinir oog júu það kom a.m.k eitt
satt fram í greininni í Dv; hann kom með írska köku, viltu?

Það sem ég var ánægðust með í greininni var að það kom fram að ég væri efnileg körfuknattleikskona...
Þó verð ég að játa það þó að það hafi verið gaman að lesa það, að það er að vísu ekki allsatt
þar sem að ég sit á bekknum í meistaraflokksleikjum, horfi á leikinn og svitna á rassinum.

Þá er það komið í bili. Búin að leiðrétta það sem ég vildi leiðrétta þar sem að ég hef heyrt margar útgáfur, hver annarri skemmtilegri og meir spennandi.

Fyrir tryggustu aðdáendurna( mömmu) þá mun ég líklega halda áfram að blogga úr þessu, víí.

Ástrós ástkona



Lenti í þessu um daginn.


» 33 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 13:44:56 / astros

Once upon a time, a girl asked a guy,

Kæru meðlimir og aðrir útskotahlutir.

Ég veit fyrir víst að margir hafa haft miklar efasemdir um mína getu með að halda
síðunni uppi. Ég tel mig fullfæra um að blogga jafnvel 1-2 í mánuði. Jæja bítum í okkar gula, súra epli og höldum áfram.

Lífið sanngjarnt? Það held ég nú ekki, sumir eru heppnari en aðrir og
aðrir eru heppnari en sumir, svona er lífsins gangur og víst er að ekki er hægt að breyta honum.
Þegar menn eru orðnir einum of hamingjusamir, detta þeir í drullupollinn og fá allan
þann for yfir sig skjaldbaka getur komið út úr afturenda sínum, alla sína ævi.(sem er um 150 ár)
Góð dæmi um þetta eru stjörnurnar, frægðin keyrir þær út (ekki samt í bíl, kannski járnbrautalest)
Hvað er það sem hamingjusamasta manni vantar? Það er auðvitað óhamingjan uppmáluð.
Það sem ég er að reyna koma frá mér, sem gæti verið mörgum frekar ójóst,er það að enginn getur verið hamingjusamur, alltaf, allt sitt líf, þó að margir komast ansi nálægt því.

Og þeir sem eru ekki nálægt hamingjunni, eru grænir af öfund út í þá sem lifa sælu lífi. Eða tja....kannski er þeim bara mál að kasta upp eða enn frekar voru þau að mála sig græn í framan eins og ég geri vanalega á sunnudagskvöldum milli 21:37 og 21:43..ahh góðir tímar.

http://www.freakyourmind.com/


Geriði þetta endilega við vin ykkar, hef aldrei haft jafn mikið fjör af neinu öðru.

http://youtube.com/watch?v=P0bK91Icf9s Eitt annað stykki af myndbandi um það sem þessi gaur gerir

Ef einhver er að hugsa núna um hvað ástrós er að gera, þá er ég að vinna í því að líma saman hökuna mína af því að hún datt í gólfið
og brotnaði þegar ég sá þetta( Það er að segja þegar ég vissi ekki hvernig þetta var gert)

Hvenær er sá orðheppni orðheppinn?

Hann er nefninlega ekki alltaf orðheppinn, ég hef verið að hugsa út í
sumar manneskjur sem eru alltaf jafn orðheppnar. Það kom í ljós í þessari
rannsókn minni að sá orðheppni er ekki alltaf orðheppinn. Þegar hann/hún verður
stressuð/-aður, t.d. þegar manneskjan er í atvinnuviðtali eða jafnvel á stefnumóti
og vill of mikið að það fari vel, þá fer hann að bulla..já bulla alveg út í
ystu hársekki! Ef sá orðheppni er mjög óheppin manneskja þá getur þetta bull jafnvel
leitt út í óskemmtilegt hláturskast, öðru nafni sprell.

En við vonum það besta og hugsum alls ekki um það versta

Lokaorð: Ég veit að myndbandið ,í blogginu, hér fyrir neðan olli mörgum mannskemmdum og það eru sumir sem eru hættir að borða vegna fagurleika þess og ég mæli eindregið með því að þið horfið á það ef þið viljið gerast búlemíusjúklingar. En getiði hvað..j ég vissi að þið höfðuð rétt fyrir ykkur, ég hef nýtt myndband fram að færa, sem er kannski alveg jafn dúllulegt og hitt en samt nokkuð frábært.

http://www.youtube.com/watch?v=xrV7XPXPkfk

Lokaorð framhald2: Myndavél Ástrósar er heima Bjarna Rey og því hafa engar myndir verið að klessast á síðustjórnina, en hann sagði mér einmitt að hann hafi tekið nokkrar skemmtilegar myndir og ég get ekki beðið eftir að sjá þær og henda þeim hérna inn á!

Mynd númer 15

DJ Ástrós er feneto


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 22:24:59 / astros

Ertu líkami eða sál?

Við viljum baunir á morgnanna og apakjöt á kvöldin.

Jæja fátæku námsmenn og heimamenn, komið er að því að nýtt blogg verði skráð á þessari síðu.

Já ég sit inná baðherbergi á mjúku mottunni með fartölvuna í fanginu, eða eins og mamma orðar það ,,klósett-fundur,, aah hvað það er þægilegt.

En það verður ennþá þægilegra að sitja hérna þegar ég er ekki undir stanslausu áreiti frá skólabókum og kennurum, já auðvitað er ég að tala um vetrarfríið.
Þetta eru bara tveir dagar en þeir eiga eftir að gera heilmikið fyrir námsmenn sem eru orðnir dofnir, með þrútin augu eftir vinnusamar nætur þar sem að þeir eru að reyna höndla þau verkefni sem kennarar láta fyrir. Ef heilinn væri vöðvi(er hann nokkuð vöðvi..?) þá væri hann að jafnaði orðinn jafn sterkur og hnetubrjótur. En það er bara draumur í dollu, að geta brotið hnetu með heilanum, alla dreymir um þann hæfileika, eða ég man allavega í æsku er mig dreymdi það á hverri nóttu...æææ ástrós ekki vera svona fyndin.

Aaa tölvan batteríslaus, afsakið töf.....................

Komin í samband og allir glaðir og graðir..neei vúhúbs kannski bara ég.

Anyways verður þetta bara stutt í kvöld.

Get varla skilið ykkur eftr alveg tómhent og vonsvikin een ég neyðist til þess. Mig langaði samt að sýna ykkur hvernig bólur geta farið með húðina og hvað þarf stundum að gera til að losna við þær.

http://video.google.com/videoplay?docid=5018830111390743954&q=zit&total=4263&start=
10&num=10&so=0&type=search&plindex=0

Ooog já áður en þið horfið á það, þá er þetta alls ekki fyrir viðkvæm og jafnvel græn augu.

Og eitt fyrir ykkur sem viljið vera sniðug: Ekki dæma aðra fyrr en
þið hafið gengið 1 km í skónum hans, því þá eruði bæði 1 km frá
þeim sem þú ætlar að gagngrýna og þú hefur skóna hans! júhú

Já verð að bæta einu við; Þið sem hafið áhuga á þá eru myndir á leiðinni yfir Svartahaf og lenda sennilega um Sunnudagsleytið, semsagt myndir frá balli og
myndir frá óvissuferð. Jeess, gaman að sjá alla svona spennta.

-Ástrós kveður í þetta sinn


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 16:11:13 / astros

Varúð Þunglyndisflensa! bráðsmitandi

Jæja góðir hálsar og aðrir líkamspartar,
nú vita allir eða flestir að veturinn er á leiðinni
til okkar (velkomnir í þáttinn þið sem ekki vitið að veturinn er á næstu grein).
Til að fagna sumarlokum hafa margar ungar stelpur fengið þá flugu í hausinn að lita á sér
hárið brúnt og það sem ég hef séð hingað til hefur komið vel út.En ég held að
þegar húðin hvítnar í vetur eiga þær eftir að breyta sér í glókoll aftur, eða það heyrist mér á þeim. Tískubylgja.
En þar sem að ég er nú að tala um veturinn vil ég bara minni fólk á að klæða sig vel
því þegar frostið kemur, sýnir það enga miskunn og þeir sem verða fórnalömb þess fá kvef og jafnvel stíflaðar garnir..það er eitthvað sem enginn vill lenda í.


Ohh svo kósý í vetur

 Já það er rétt herrar mínir og frúr, það eru engar nýjar fréttir að mikill fjöldi
þjáist af þunglyndi. Þunglyndisflensan er búin að smita fleiri en fuglaflensan hefur
og örugglega mun nokkurn tíman koma með að gera. Í þá daga voru allir skíthræddir við fuglaflensuna
mér að meðal talnri..eða var það kannski bara ég sem óttaðist hana ekki allir hinir?!
já sennilega, ég hef allavega ekki þorað að snerta súkkulaðið í fjólubláu umbúðunum með kúnni
framan á, þar sem að það var einu sinni auglýst í fréttum að þú gætir fengið salmúnellu og jafnvel
fuglaflensu ef þú prófaðir að smjatta á því. En þar sem að fuglaflensan hefur ekki enn brotist út
eins og stríðið í Írak, þá ætla að ég að tala um þunglyndisflensuna.
Ég vil spurja þá sem enn lesa þessa síðu(sem er sennilega bara Edda og jaa ef ég er heppin
þá gæti mamma verið að lesa þetta, hææ mamma) einhvern vegin heimsækja ennþá um 30 manns á dag mig
hingað. Ég var einmitt að spurja mig að því hvort að þetta væri
Edda að bíða eftir að ég bloggi fyrir hana, þar sem að ég lofaði henni að ég mundi bloga
á meðan hún væri úti, mér til mikillar mæðu, henni til mikillar kætu. En já spurningin sem ég ætlaði að spyrja ykkur góðu lesendur(Edda)!
Hvenær er maður kominn á fyrsta stig þunglyndis? Hvað segir til um að maður sé orðinn þunglyndur?
Er maður kominn á einhvað stig ef að maður situr einn heima hjá sér að hlusta á rólega, þunglyndislega
tónlist og grætur úr sér augun af því að allt í lífinu er í messi? Ég allavega veit um mörg atvik sem eru í þessum flokki, en manneskjurnar eru ekki þunglyndar, eða hvað?
Fyrir ykkur sem hafa ekki prófað þetta, það er að segja að hlusta á rólega,þýðingarfulla tónlist og
grenjað augun úr ykkur(passið að niðurfallið sé í lagi, ekki viljum við fá flóð og eyðileggja gólfið;), þá er þetta mjög þægilegt og einhvernvegin leysir um þá spennu og streitu sem hefur
hlaðist upp hjá ykkur á einhverjum ákveðnum tímamótum. Það er ótrúlegt hvað tónlist getur læknað!


Ætli þessi sé þunglyndur?..eða kannski bara þreyttur eftir erfiðan vinnudag í sundlaugarbúrinu?

Ég gæti haldið endalaust áfram með þetta sama efni, bara ef að maður gæti gert það sama þegar maður á að gera ritgerð í ensku.


Svo var ég að fá hina fínustu myndavél þannig að ég held áfram..eða held áfram ég byrja að taka myndir fyrir þig my lov(Edda)

 

-Seinna félagar


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 13:19:30 / astros

Hann: ég er búin að kaupa legsteininn þinn og á honum stendur: ,,hér hvílir Guðrún, köld eins og vanalega!

Jæja, það er góður dagur í dag, sólin skín, lífið er yndislegt og neglurnar mínar eru langar.
Ef ég ætti að segja ykkur alla söguna þá eru þær langar og ljótar, 
með rauðu afkroppuðu naglalakki. Við tilhugsunina langar mig mest til að fara hlaupa á grænum túnum og hoppa
í sund en ég er að fara að vinna þannig að sú tilhugsun er af skránni.

Tíminn er að renna út og ég þarf að drýfa mig af stað, ætlaði bara að láta ykkur vita
að ég hvorki sofnaði né dó við tölvuna, er bara svona skemmtilega löt við það að blogga.

Þar til næst mate!

http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=3226 - Þetter ofur!


Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekki hvað ég gerði, þá geta allir hinir sagt mér það.

Ástrós-

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 19:36:12 / astros

Byrjandi

hæ og hó, ég fékk þá flugu í hausinn, eða ef ég á að segja sannleikann þá fékk ég enga flugu í hausinn
,,heldur datt mér það í hug,, að verja bróðurpartinum af sumarinu hér, á þessari síðu, með ykkur.
Hvernig lýst ykkur það? Vonandi vel vegna þess að ég ætla ekki að yfirgefa svæðið (síðuna)

Ég er dottin úr æfingu þannig að þið verðið ekkert súr út í mig ef að
þetta blogg verður "vægast sagt" skelfilegt en ég ætla að vara ykkur við því að áður en þið lesið það..ekki lesa það!

Eeen, ég er með eina spurningu, til hvers að fara í ljós þegar að maður getur bara skellt
sér út á pall eða út á blett og látið sólina kæfa mann með þessum frábæru, útfjólubláu geislum, í staðinn fyrir að láta ögnsmáar ljósaperur drepa mann.
Ég geri mér samt fulla grein fyrir því að fólk
hefur ekki neinn tíma til að liggja eins og skata í sólbaði heima hjá sér, I'v been there and done that.
Loksins í fyrsta skiptið í 2-3 mánuði hef ég haft einhvern tíma til að gera ekki neitt, hef beðið spennt eftir því að hafa ekki neitt að gera nema það sem ég vil!
Ef að maður hefur nógan tíma
þá getur maður gert allt sem maður vill..eða í flestum tilvikum, ég get t.d. ekki gert það sem mig langar mest til að gera
loksins þegar ég hef tíma vegna þess að það stendur ekki til boða lengur en maður verður að gera sem besta úr
því og brosa við heiminum svo að hann brosi við þér. Reyndar ef að maður tekur því þannig að þegar það er sól
þá sé heimurinn að brosa við þér en við skoðum það frá öðru sjónarhorni þá er sólin í rauninni að drepa þig með
geislunum. Næst þegar þið horfið á bíómynd um vesaling sem að allt fer úrskeiðis og það byrjar að rigna, muniði
þá eftir því að rigning gerir mun betur en sól! Það er gallinn við bíómyndina!

Hvað sem þið gerið,hvort sem að þið farið útí sólina, farið í sólbað undir
leslampanum ykkar inn í herbergi eða troðið ykkur inn í örbylgjuofninn...sem ég vona að ekki margir fari að gera, berið á ykkur sólvörn!
Þið viljið ekki enda eins og rækjurnar sem eru í sjónum rétt fyrir utan Taívan! Því get ég lofað ykkur

 -Hafliði-

Hik er sama og tap 
 


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 17:02:32 / astros

Ohh damn, that women is a man!

Eftir það að hafa þjáðst af stærðar ritstíflu frá fingrum upp í augu og niður í táneglur,
þá get ég sagt að ég hafi ekki lagast af henni.

Jæja fólk þá er komið að því. Eins og fólk segir,, Þeir deyja ungir sem guðirnir elska mest,,

Ætla að kveðja með nokkrum stuttumorðum, þessi síða er komin í pásu, veit ekki hvað lengi en hún mun snúa aftur fyrr en þið vitið;)

Takk fyrir samverurnar!
Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of
þröngum skóm.

Ástrós


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 22:56:15 / astros

Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af lærinúningnum kveikti í sokkabuxunum!

Bless kalda Ísland!! fokk já bless

Farin til Bostons að verlsa og éta!

Í næstu viku ef þið sjáið einhvern spikfeitan þá er það ég;)

Ástrós-

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 15:26:36 / astros

Ljósanótt- Lightnight- Lysenåt- Lundurnot- Saggasagi

Hávarður hæ!

Eins og fyrirsögnin segir þá er greinilegt að Ljósanótt sé að banka á hurðina hjá öllum hérna í Reykjanesbæ.
Við vorum jú við setningu og fengum að sleppa bláum blöðrum, það var æðislegt. Þessum degi gleymir maður
seint!


Svölu bláu blöðrurnar.

Jæja þetta verður stuð

Bærinn eftir Laugardaginn!

Bara hafa þetta stutt.

Ástrós
Gangið hægt um gleðinnar dyr!


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 17:14:57 / astros

Rollukjöt í gær, rollukjöt í dag og fjandinn hafi það, ætli það verði ekki sami rollurassinn á morgun


Uss ég er ekki búin að vera dugleg og ég er ekki heldur búin að vera gera mikið þessa daga.
Aðallega fara út að hlaupa til að styrkja lungun svo að þau leka ekki í klósettið í næstu klósettferð!
En svo er ég líka búin að vera vinna og ýmislegt.

Í fyrri nótt var heilinn á mér í alvarlegu ástandi. Hann var á flipp stiginu.
Ég fór að reyna sofna eftir supernova og ég var held ég vakandi til 5, ojejh. En allavega á meðan þessu stóð þá náði ég að hugsa um hvað ég ætlaði að blogga í næsta bloggi svo ég læt bara vaða.

Það er mjög oft verið að tala um að tölvur og gsm-símar séu skaðleg, jafnvel banvæn, haha nei djók, en fyrir fólk sem er með mjög lítið sjálfsöryggi er þetta kjörin leið til að tala við einhverja manneskju.
Feimið fólk hefur loksins fundið leið til þess að hafa samskeyti við annað fólk en auðvitað eru símarnir og tölvurnar ekki persónulegt þannig ég mæli með að fólk sem hefur mikið sjálfsöryggi tali bara beint við aðrar manneskjur, nóg um það.


Þessi lýsir vel hvað sjálfsálit varðar milli kvenna og karla 

Ég var líka að hugsa um drauma. Þeir eru stórfurðulegir. Það er eins og það er verið að segja okkur eitthvað. Hafiði ekki fengið svona eins og...hvað? vitrun? hehe nei ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta
en hafiði ekki fengið eins og það er einhver sem vill segja ykkur eitthvað í draumnum, t.d. um daginn
þá kom talan 19 uppí hausinn á mér(í draumnum) og svo birtist bróðir minn að koma úr flugvél og hann er í skóla á spáni og átti að koma heim núna í sumar, svo daginn eftir spurði ég mömmu hvenær hann kæmi og þá kom í ljós að hann
kemur 19. Skrítið...Annað: Ég er alveg viss að flestir hafa fengið svona eins og ykkur hafi dreymt annað hvort
staðinn sem þið eruð á eða eitthvað lag eða jafnvel umræður sem þið eruð að ræði við félagana ykkar. Þetta er frekar sniðugt.

 

Hey já svo er einn annar draumur sem mig langaði að segja ykkur, hann er reyndar ekkert merkilegur en þessi draumur
sýnir okkur að það verða ekki allir draumar sannir og greinilega ekki þessi af því að mig dreymdi að ég væri góð í fótbolta hehe já ekki orð. En draumurinn var þannig að við vorum í reykjaneshöllinni
nokkrir krakkar í fótbolta og ég var mjög góð( ekki detta í hug hlægja) og svo fékk ég boltann
og sparkaði og búmm, sparkaði beint í gluggakistuna. Er með marblett og kúlu á sköflunginum...hehe:).Veit ekki afhverju
ég var að segja þennan draum fannst hann bara svo meeegnaður.

jnm

Hann: ég er búin að kaupa legsteininn þinn og á honum stendur: ,,hér hvílir Guðrún, köld eins og vanalega!"

Hún: Já er það?!?! Ég er líka búin að kaupa þinn og á honum stendur;,,Hér hvílir Þórir, stífur í fyrsta sinn!"


Kjekkas
Sætt:)

Ástrós-


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 23:56:35 / astros

Afmæli

Lovísa gæs átti afmæli í gær en hún er úti á spáni svo að það er ekki hægt að óska henni öðruvísi en hérna:)

KjánaBján;*

Til hamingju skvísa, jeg elsker dig

Ástrós
blogg á leiðinni;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 21:50:32 / astros

Hneyksli

Uss heyriði ég var að lesa það að nýja myndbandið með Beyonce, Deja Vu, var gert upptækt vegna atriðið með henni og Jay-Z var víst of kynferðislegt og sýndi of mikið af þeirra ástrasambandi, ekki er vitað hvernig framhaldið verður..


Haha maður horfir nú bara á þessi myndbönd með Christinu og þeim gellum og spyr sig hvaða fáviti leyfði þessum mynböndum að vera í lofti en ekki Deja Vu.


Commooon, er hún farin á hausinn og getur ekki keypt sér föt eða hvað er málið?


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 18:50:43 / astros

Afmæli:)


Þessi bjútí á afmæli í dag, loksins orðin 15...hvernig finnst þér að vera orðin svona fullorðin?

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 19:50:07 / astros

Son of a gun

Eftir það að hafa þjáðst af stærðar ritstíflu frá fingrum upp í augu og niður í táneglur,
þá get ég sagt að ég hafi ekki lagast af henni.

En ég get allavega spurt einnar spurningar, hvað varð um sumarið? Á það eftir að koma eða
er heimurinn að gera vonda hluti og láta sumarið á Íslandi ekki koma?

Nei hey ég get ekki skrifað, er alveg lost. Svekkelsi, nú jæja þetta skánar vonandi
bráðlega, heilinn er örugglega dottinn úr sambandi, hann gerir það oftast yfir
sumartímann hjá mér.

En jú við vorum útá spáni og það gekk allt bara eins og gengur, kynntumst fólki, spiluðum körfu bæði í íþróttasalnum við stelpur á okkar aldri og fyrir utan íþróttahúsið við tvo stráka sem voru á bilinu 10-13 töluðu bara spænsku eða einn gat talað smá ensku, svo átum við auðvitað, þetta var nú ekkert indælasti matur sem ég hef smakkað en það var hægt að lifa á honum.


Strákarnir sem við tókum leik við:)

Og auðvitað tekið dansinn hjá klessubílunum

Hoppað í laugina eftir sigurinn!

Tekið á móti verðlaununum(:

En þetta gerðist allt fyrir tveimur vikum og það hefur þó ekki margt á dagana drifið.

Hey tékkið fyrirsögnina..þó að stafirnir eru ekki þeir sömu, þá rímar þetta samt..indælt.

Ástrós-



» 8 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 19:36:50 / astros

Afmæli


Steffý bjútíbolla á afmæli í dag..15 ára pæja:) Til hammó með ammó elskan:*

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8